NOUNOU/ Fyrir mikið efnameðhöndlað hár

Davines

NOUNOU/ Fyrir mikið efnameðhöndlað hár

Kostar 3.200 kr
Unit price  per 
Vsk. Innifalinn Shipping calculated at checkout.

Nærandi sjampó sem gefur hárinu fyllingu.

Fyrir hár sem er þurrt eða skemmt eftir efnameðhöndlun. 

Inniheldur virk efni úr Torre Guaceto Fiaschetto tómötum frá Slow Food Presidia býli. Ríkt af kolvetnum og próteinum, hefur sterka nærandi krafta og andoxunareiginleika fyrir tilstuðlan C-vítamíns. Virku efnin eru fengin úr aldinkjöti tómatanna og hafa einstaklega frískandi og nærandi eiginleika.

NOTKUNARLEIÐBEININGAR: 
Berið í blautt hár og nuddið mjúklega, skolið og berið í aftur. Fylgið eftir með NOUNOU/ næringu eða NOUNOU/ hármaska eftir þörfum.


VIRK NÁTTÚRULEG EFNI: 
Fiaschetto tómatar frá Guaceto Þessi safaríki og sæti tómatur tilheyrir hefðum í matargerðarlist miðjarðarhafsins. Hann var lykilþáttur hjá öllum fjölskyldum, meira að segja í borgum, í að gera tómatsósu fyrir veturinn. Þrátt fyrir ríkulega sögu hans var Fiaschetto tómaturinn nær útdauður. Það var dýrt að rækta hann og uppskeran var minni en af öðrum tómata afbrigðum sem síðar voru þróaðir í sósugerð. Þökk sé yfirgripsmikilli leit í grænmetisgörðum svæðisins fundust Fiaschetto plöntur og hefur ræktun tómatarins nú verið endurvakin.