MARC INBANE Radiant Sett & Snyrtitaska

Marcinbane

MARC INBANE Radiant Sett & Snyrtitaska

Kostar 14.200 kr
Unit price  per 
Vsk. Innifalinn Shipping calculated at checkout.

Lúxus sett sem inniheldur Perle de Soleil brúnkudropa og Le Teint rakakrem frá MARC INBANE. Falleg taska fylgir frítt með. 

 

Perle de Soleil:

Perle de Soleil brúnkudroparnir frá MARC INBANE eru fullkomnir til að ná fram fallegum og heilbrigðum ljóma og náttúrulegri brúnku sem er sérsniðin að óskum hvers og eins. Brúnkudroparnir eru mjög auðveldir í notkun - þú einfaldlega blandar þeim saman við þitt eftirlætis rakakrem/líkamskrem eða í sólarvörnina þína og nærð þannig fram náttúrulegri brúnku. Brúnkudropana skal aðeins nota með nærandi kremi og mikilvægt er að fylgja notkunarleiðbeiningum. Brúnkudroparnir innihalda ekki SPF og veita því ekki vörn gegn skaðlegum geislum sólar. Mikilvægt er að þvo hendur eftir notkun. Aðeins ætlað til útvortis notkunar. Geymið þar sem börn ná ekki til.

 

Le Teint:

Le Teint er lúxus litað rakakrem frá MARC INBANE sem hentar til daglegrar notkunar á hreina húð. Það viðheldur eðlilegum raka húðarinnar og verndar húðina fyrir áreiti umhverfisins. Le Teint litaða dagkremið inniheldur Bronzyl® sem tryggir að húðin heldur lengur lit hvort sem er frá sól eða okkar náttúrulegu sjálfbrúnkuvörum. Innihaldsefnin Sheabutter, Hygroplex® og náttúrleg rakagefandi blanda (NMF, Natural Mousturizing factors) sjá til þess að húðin haldi fullkomnum raka og næringu sem gefur húðinni mýkt. Le Teint inniheldur háþróaða UV vörn sem veitir húðinni vernd gegn skaðlegum geislum sólar og ótímabærri öldrun.

Náttúrulegu plöntuþykkni er bætt við vegna mýkjandi og róandi eiginleika þess og gefur það einnig jafna og fallega áferð. Rakakremið er án olíu og er ríkt af vítamínum, gefur húðinni meiri fyllingu og aukinn ljóma. Með notkun kremsins endurheimtir húðin sitt náttúrulega jafnvægi og heilbrigði. Hentar öllum húðgerðum, jafnvel þeim allra viðkvæmustu.

 

Kostir Le Teint:

  • Litað dagkrem sem lengir endingartíma brúnkunnar
  • Hægt að nota eitt og sér eða í bland við farða
  • SPF10 hjálpar til við að verja húðina gegn skaðlegum geislum sólarinnar og áreiti umhverfisins
  • Veitir vörn gegn ótímabærri öldrun
  • Sannreynt og prófað af húðlæknum
  • Vegan
  • Án parabena
  • Hentar öllum húðgerðum
  • Án olíu
  • Lofttæmdar umbúðir