SOLU/ Djúphreinsandi sjampó

Davines

SOLU/ Djúphreinsandi sjampó

Kostar 3.600 kr
Unit price  per 
Vsk. Innifalinn Shipping calculated at checkout.

Afar virkt frískandi sjampó sem djúphreinsar hárið og fjarlægir allar leifar af mótunarvörum. Það er sérstaklega heppilegt til að nota eftir sundferðir til að ná klórnum úr.

Fyrir allar hárgerðir.

Inniheldur virk efni úr Valtellina bókhveiti frá Slow Food Presidia býli.
Ríkt af steinefnum og söltum og þá sérstaklega járni, sinki, seleníi og próteinum. Inniheldur ríkulegt magn af mikilvægum amínósýrum, þá helst lysín, þerónín, tryptófan og amínósýrur sem innihalda súlfúr. Einnig ríkt af andoxunarefnum.

NOTKUNARLEIÐBEININGAR
Berið í blautt hár og nuddið mjúklega, skolið og berið í aftur. Fylgið eftir með þeirri næringu sem hentar ef þurfa þykir. 


VIRK NÁTTÚRULEG EFNI: 
Bókhveiti frá Valtellina 


Valtellina bókhveitið er harðger planta sem þolir vel bæði kulda og þurrka og hefur því löngum þótt heppileg jurt til að planta eftir rúgs, kartöflu og bygg uppskeruna. Þar sem hún er óvinsæl hjá sníkjudýrum má auðveldlega rækta jurtina án nokkurra eiturefna. Eftir að hafa dalað upp úr 19. Öld nýtur Jurtin nýtur nú aukinnar hylli vegna ríkulegs næringarinnihalds auk þess að vera glúteinlaus.

Framleiðandi: Hr. Patrizio Mazzuchelli, frá Teglio, Sondrio.