NOUNOU/ Hair Mask

Davines

NOUNOU/ Hair Mask

Kostar 5.500 kr
Unit price  per 
Vsk. Innifalinn Shipping calculated at checkout.

Kraftmikill og uppbyggjandi maski fyrir djúpa næringu. Fyrir hár sem er þurrt eða skemmt eftir efnameðhöndlun.

Inniheldur virk efni úr Torre Guaceto Fiaschetto tómötum frá Slow Food Presidia býli. Ríkt af kolvetnum og próteinum, hefur sterka nærandi krafta og andoxunareiginleika fyrir tilstuðlan C-vítamíns. Virku efnin eru fengin úr aldinkjöti tómatanna og hafa einstaklega frískandi og nærandi eiginleika.

NOTKUNARLEIÐBEININGAR: 
Berið í handklæðaþurrt hárið eftir að hafa notað NOUNOU/ sjampóið. Skiljið eftir í hárinu í 10-15 mínútur, greiðið og skolið svo. Fylgið eftir með þeim mótunarvörum sem þér henta.

VIRK NÁTTÚRULEG EFNI: 

Fiaschetto tómatar frá Guaceto

Þessi safaríki og sæti tómatur tilheyrir hefðum í matargerðarlist miðjarðarhafsins. Hann var lykilþáttur hjá öllum fjölskyldum, meira að segja í borgum, í að gera tómatsósu fyrir veturinn. Þrátt fyrir ríkulega sögu hans var Fiaschetto tómaturinn nær útdauður. Það var dýrt að rækta hann og uppskeran var minni en af öðrum tómata afbrigðum sem síðar voru þróaðir í sósugerð. Þökk sé yfirgripsmikilli leit í grænmetisgörðum svæðisins fundust Fiaschetto plöntur og hefur ræktun tómatarins nú verið endurvakin.

Framleiðandi: Calemone býlið undir stjórn hr. Mario di Latte

Frá Serranova di Carovigno, Brindisi

250 ml