Skilmálar


Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum. 

Skilafrestur og endurgreiðsluréttur

Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með. Endurgreiðsla er framkvæmd að fullu ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt og eftir að varan er móttekin. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd. Vinsamlegast hafið samband við Skuggafall með spurningar.

Afgreiðsla

Allar pantanir eru afgreiddar 1-4 dögum eftir pöntun. Viðkomandi fær tilkynningu þegar pöntun hefur verið tekin saman og sett í póst. Ef vara sem er búið að greiða fyrir reynist uppseld, vegna skekkju í birgðarstöðu, verður haft samband við viðkomandi og bakfærsla framkvæmd.

Sendingar

Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 24% vsk en sendingakostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram. 

Af öllum pöntunum sem er dreift af Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Skuggafall ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Skuggafalli til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda. Hægt er að greiða 590 kr. fyrir rekjanlegt bréf. Frí heimaending er á pöntunum 10.000kr. og yfir.


Verð

Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara. Tilboð í vefverslun gilda í sumum tilfellum eingöngu fyrir vefverslun. Með sama hætti  gilda tilboð á hárgreiðslustofunni Skuggafall ekki alltaf í vefverslun.

Gölluð vara 

Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir. Eða endurgreiðum ef þess er krafist. 

Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.

Lög og varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness.