Heilbrigt ljóst hár


HEART OF GLASS ER NÝJASTA LÍNAN FRÁ DAVINES EN HÚN ER SÉRSTAKLEGA HÖNNUÐ FYRIR NÁTTÚRULEGA LJÓST EÐA LITAÐ LJÓST HÁR.

 

Línan samanstendur af fjórum vörum sem styrkja, vernda og næra hárið ásamt því að viðhalda lit, vinna gegn óæskilegum tónum og gefa ljóma.

Ljóst hár, allt frá náttúrulega ljósu yfir í aflitað, þarf sérstaka athygli og aukna umönnun til að halda því heilbrigðu og glansandi. 

Ljóst hár er afar viðkvæmt og getur t.d. tapað glans í sólinni, saltvatni eða klór. En með réttum vörum og réttri hárumhirðu er mögulegt að varðveita náttúrulegan gljáa hársins.

ATH að línan er ekki komin í sölu. Við eigum von á henni á næstu dögum. Fylgist með á Instagram og Facebook, við látum ykkur vita þar :)

#1 – Blátt sjampó til að skerpa á ljósa litnum

Sjampóið inniheldur þykkni úr Jagua ávextinum sem lífgar upp á og skerpir alla ljósa liti og vinnur gegn óæskilegum, heitum tónum.
NOTKUNARLEIÐBEININGAR: Berið í rakt hár og hársvörð og nuddið létt. Skolið vel úr og endurtakið eftir þörfum. 

#2 – Rík næring til að næra ljóst hár

Ljóst hár, og þá sérstaklega (en þó alls ekki eingöngu) hár sem hefur verið aflitað, þarf að meðhöndla með vörum sem styrkja hárið. Heart of Glass hárnæringin – Rich Conditioner – inniheldur Biacidic Bond Complex og Baobab þykkni sem lífga upp á hárið og gera ljósa litinn bjartari.  
Blái liturinn á næringunni kemur frá náttúrulegu þykkni Jagua ávaxtarins. Þetta er mikilvæg nýjung þar sem þetta gerir okkur kleift að forðast gervi litarefni.

#3 – Meðferð sem styrkir aflitað hár

Það er ekki bara litað ljóst og aflitað hár sem getur verið viðkvæmt og brothætt heldur einnig náttúrulega ljóst hár sem hefur verið mikið í sól eða sjó til dæmis. Til að næra og hemja hárið mælum við með Heart of Glass Intense Treatment meðferðinni amk einu sinni í viku. Formúlan inniheldur Biacidic Bond Complex – sem Davines á einkaleyfi á – sem endurbyggir hárið og kemur í veg fyrir frekari skemmdir.
NOTKUNARLEIÐBEININGAR: Berið í lengd og enda. Látið bíða í 5-10 mínútir, greiðið í gegn og skolið vel úr. Því lengur sem meðferðin fær að bíða, þeim mun meiri verður virknin.  

#4 – Rakagefandi hitavörn sem gefur ljóma

Heart of Glass Sheer Glaze sem gefur raka og glans auk þess sem það ver hárið fyrir hita og UV geislum sólar.
Inniheldur styrkjandi jurtaþykkni sem eykur teygjanleika og kraft hársins.
NOTKUNARLEIÐBEININGAR: Notið 7-15 pumpur og dreifið jafnt í handklæðaþurrt hárið. Greiðið í gegn og mótið að vild.
 
Til að skoða vörur smellið HÉR